Æstur múgur stakk og brenndi mann lifandi eftir að hann stal súpu í suðaustur Nígeríu í gær. Greint var frá þessu í nígerískum fjölmiðlum í dag. Líkið var síðan skilið eftir fyrir utan barnaskóla í borginni Calabar.
Samkvæmt dagblaðinu This Day var maðurinn hluti af þriggja manna gengi. Mennirnir fundu lyktina af súpunni í gærmorgun og leiddi ilmurinn þá inn í eldhús í húsi einu í borginni. Kona sem var í eldhúsinu þegar að mennirnir stálu súpunni kallaði á hjálp og nágrannar hennar eltu mennina. Múgurinn náði manninum sem hélt á súpupottinum og réðst fólkið á hann með sveðjum áður en kveikt var í honum.
„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir koma í nágrennið til að stela. Í síðustu viku stálu þeir rafgeymi úr bíl eins nágranna míns,“ sagði íbúi í nágrenninu í samtali við dagblaðið. Lögregla í borginni hefur fordæmt morðið.