Stúlkubarn fannst í yfirgefnum pappakassa fyrir utan hús í bænum Corby í Northamptonshire í Bretlandi í dag. Lögreglan telur að stúlkan sé 1-4 vikna gömul.
Vegfarandi fann barnið vafið inn í blátt teppi. Lögreglan segir að stúlkan virðist við góða heilsu en hún var flutt á sjúkrahús þar sem hlúð er að henni.
Lögreglan leitar vitna og upplýsinga um barnið. Í frétt Sky kemur fram að lögreglan leggi áherslu á að finna móður barnsins þar sem hún óttast um velferð hennar.