Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Jens Stoltenberg, segir að aukinn kraftur í hernaðaríhlutun Rússa í Sýrlandi valdi vandræðum. Hann segir að bandalagið muni leggja mat á það hvaða áhrif þetta hefur haft á öryggi bandalagsríkjanna.
Þetta kom fram í máli Stoltenbergs á fundi varnarmálaráðherra NATO ríkjanna í Brussel þar sem rætt er um aukin hernaðarafskipti Rússa í Sýrlandi. Fundur NATO er haldinn í kjölfar kvörtunar Tyrkja yfir því að rússneskar orrustuþotur hafi brotið lofthelgi landsins. Rússar hafa skotið eldflaugum úr herskipi á Kaspíahafi auk þess að hafa gert loftárásir í Sýrlandi á bækistöðvar Ríkis íslams.
Rússar neita ásökunum vesturveldanna um að loftárásirnar hafi einkum hæft stjórnarandstæðinga í Sýrlandi en Rússar hófu loftárásir í Sýrlandi að beiðni forseta landsins, Bashar al-Assad.