Tveir sautján ára piltar hafa verið handteknir í tengslum við nauðgun á tveggja og hálfs árs gamalli stúlku í Delí. Stúlkunni blæddi gríðarlega eftir árásina og um allan líkama hennar voru bitför og sár.
Piltarnir voru handteknir eftir að lögreglan hafði spurst fyrir í nágrenni staðarins þar sem stúlkunni var nauðgað.
Þrír menn hafa verið handteknir vegna nauðgunar á fimm ára gamalli stúlku annars staðar í borginni. Málin tengjast ekki en í báðum tilvikum tengjast hinir handteknu fjölskyldum fórnarlamba sinna.
Gríðarleg reiði hefur brotist út meðal borgara á Indlandi og hávær og fjölmenn mótmæli farið fram á götum úti. Kynbundið ofbeldi er algengt í landinu og finnst mörgum ekki nægilega hart tekið á slíkum brotum.
Litlu stúlkunni, sem aðeins er rúmlega tveggja ára, var rænt á föstudag. Nauðgararnir biðu færis þar til rafmagni sló út í hverfinu. Þá létu þeir til skarar skríða og rændu stúlkunni. Hún fannst þremur klukkustundum síðar í almenningsgarði með gríðarlegar blæðingar. Sú fimm ára var lokkuð inn í hús nágranna síns og nauðgað þar. Hún hlaut mikla áverka og var flutt á sjúkrahús. Talið er að hún sé nú úr lífshættu.
Fyrir viku fannst fjögurra ára stúlka skammt frá lestarteinum í borginni. Henni hafði einnig verið nauðgað og hún svo skorin með eggvopni.
Árið 2014 var tilkynnt um 2.000 nauðganir í Delí.