Ung afgönsk kona, sem var gift manni gegn hennar vilja, var grýtt til bana eftir að hafa náðst á flótta með öðrum manni. Morðið var tekið upp á myndskeið og hafa yfirvöld staðfest að konan hafi verið verið myrt með þessum hætti.
Í myndskeiðinu sést konan, sem heitir Rokhsahana og er um tvítugt, ofan í holu og menn kasta grjóti í hana þangað til hún hnígur niður.
Rokhsahana heyrist ítrekað segja shahada, sem er bæn múslíma, í myndskeiðinu sem hefur verið birt í afgönskum fjölmiðlum.
Morðið var framið fyrir um viku síðan í Ghalmeen, sem er í 40 km fjarlægð frá héraðsborg Ghor, Firozkoh.
Það voru leiðtogar talibana í héraðinu sem dæmdu Rokhsahana til bana og að grýta ætti hana til bana, segir Seema Joyenda héraðsstjóri Gohr en hún er önnur tveggja kven-héraðsstjóra í Afganistan.
Að sögn Joyenda var það fjölskylda Rokhsahana sem gifti hana gegn hennar vilja og stakk unga konan af heiman með manni á sínum aldri. Joyenda fordæmir morðið og krefst þess að stjórnvöld í Kabúl grípi til aðgerða.
„Þetta er í fyrsta skipti sem þetta er gerist hér en verður örugglega ekki það síðasta. Konur eiga almennt í vanda alls staðar í landinu, en einkum í Ghor... Maðurinn sem hún flúði með var ekki grýttur.“