Francois Hollande Frakklandsforseti segir hryðjuverkaárásirnar í París í gærkvöldi vera stríðsyfirlýsing af hálfu hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams, en samtökin hafa lýst yfir ábyrgð sinni á árásunum. Forsetinn hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna árásanna.
Skólum, mörkuðum, söfnum og stærri ferðamannastöðum hefur verið lokað í dag í kjölfar árásanna. Sömuleiðis hefur íþróttaviðburðum verið aflýst í frönsku höfuðborginni. Haft er eftir Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, í frétt AFP árásirnar sýndu að mikilvægara væri en nokkru sinni að ríki heimsins tækju höndum saman gegn hryðjuverkum. Hét hann því að hernaðaraðgerðir Frakka gegn hryðjuverkasamtökum myndu ekki hætta.
Lagði hann sérstaklega áherslu á mikilvægi þess að halda áfram baráttunni gegn Ríki íslams en Frakkar hafa meðal annars tekið þátt í loftárásum á hryðjuverkasamtökin í Sýrlandi.