Heilsugæslustöðin var skotmarkið

Robert Lewis Dear
Robert Lewis Dear AFP

Skotmark Robert Lewis Dear, 57 ára karlmanns sem skaut þrjá til bana og særði fimm í skotárás í Colorado Springs á föstudaginn, var að öllum líkindum heilsugæslustöð Planned parenthood. Þetta segir borgarstjóri Colorado Springs.

Heilsugæslustöðvar Planned parenthood framkvæma meðal annars fóstureyðingar, en slíkt er mjög umdeilt í Bandaríkjunum og hafa oft verið mótmæli fyrir framan slíkar stofnanir.

Vicki Cowart, forstjóri stofnunarinnar á svæðinu, staðfestir þetta einnig við fréttamenn og segir að það líti út fyrir að árásinni hafi verið beint að heilsugæslunni.

Dear hefur verið lýst sem skrýtnum einfara, en að hann hafi aldrei sýnt nein merki um ofbeldishneigð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert