Danir segja nei

Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra á kjörstað í dag.
Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra á kjörstað í dag. AFP

Sam­kvæmt út­öngu­spá sem hef­ur verið birt á vef danska rík­is­út­varps­ins, þá hafa Dan­ir hafnað í þjóðar­at­kvæðagreiðslu að falla frá und­anþágu sinni frá þátt­töku í sam­starfi ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins á sviði lög­reglu- og dóms­mála sem þeir fengu fyr­ir rúm­um tveim­ur ára­tug­um síðan eft­ir að hafa hafnað Ma­astricht-sátt­mála sam­bands­ins.

Sam­kvæmt út­göngu­spánni hafa 53,3% sagt nei en 46,7% sagt já.

Lars Lokke Rasmus­sen, for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur, hef­ur hvatt kjós­end­ur til þess að samþykkja að und­anþágan verði gef­in eft­ir enda snú­ist það um að veita lög­regl­unni og stjórn­völd­um betri vopn í bar­átt­unni gegn glæp­um. „Ef við horf­um til Par­ís­ar sjá­um við að við verðum að vinna sam­an,“ sagði hann við blaðamenn í dag sam­kvæmt frétt AFP.

Kjósa um nán­ari tengsl við ESB

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert