Tveir starfsmenn Swinfen Hall-fangelsinu í Staffordskíri í Bretlandi slösuðust er óeirðir brutust út meðal fanga í dag. Um tuttugu fangar, m.a. vopnaðir stólum og borðfótum, slógust. Annar starfsmaðurinn brákaðist á kjálka og hinn hlaut áverka á höfði.
Fleiri starfsmenn slösuðust í óeirðunum en meiðsl þeirra eru sögð minniháttar í frétt Sky um málið.
Fangelsið er alræmt fyrir óeirðir sem þessar.