Telja Finnland betur sett án evrunnar

AFP

Rúm­lega tvö­falt fleiri Finn­ar telja að finnskt efna­hags­líf væri í betri stöðu án evr­unn­ar en þeir sem telja að það hefði slæm áhrif að segja skilið við hana. Engu að síður vilja fleiri halda í evr­una en þeir sem vilja hætta að nota hana sem gjald­miðil Finn­lands.

Þetta kem­ur fram í niður­stöðum nýrr­ar skoðana­könn­un­ar fyr­ir finnska rík­is­út­varpið YLE. Sam­tals eru 44% Finna á því að efna­hag­ur Finn­lands væri í betri mál­um án evr­unn­ar en 20% telja að finnskt efna­hags­líf væri í verri stöðu utan evru­svæðis­ins. 30% segja að það myndi engu skipta. 

Eft­ir sem áður myndu 54% Finna vilja halda evr­unni á meðan 31% vilja segja skilið við hana.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert