Dómstóll í Ohio-ríki Bandaríkjanna hefur ákveðið að tveir lögreglumenn sem skutu tólf ára dreng til bana í Cleveland á síðasta ári verði ekki ákærðir. Saksóknari greindi frá þessu í dag.
Dauði Tamir Rice í nóvember á síðasta ári vakti mikla reiði í Bandaríkjunum. Rice var með leikfangabyssu á leikvelli þegar lögreglu bar að garði og skaut drenginn til bana. Málið vakti mikla umræðu um ofbeldi lögreglu gegn svörtum og voru haldin mótmæli í mörgum borgum Bandaríkjanna.
Að sögn Tim McGinty, saksóknara í Cuyahoga-sýslu í Ohio, tók dómstóllinn ákvörðun sína eftir að hafa farið yfir sönnunargögn og lög þegar kemur að heimild lögreglu til að nota vopn.
Fyrri frétt mbl.is:
Segja drápið á tólf ára dreng réttlætanlegt
Skutu drenginn á innan við 2 sekúndum