Vinahópur sem leigði hús á vefsíðunni Airbnb um eina helgi í frönskum bæ varð heldur betur skelkaður þegar hann fann rotnandi lík af konu í garðinum.
„Líkið fannst við endann á eigninni þar sem hægt er að fara út í skóginn,“ sagði heimildarmaður lögreglunnar og bætti við að líklega hafi konan verið myrt.
Húsið er í bænum Palaiseau, sem er um 17 kílómetrum suður af París. Hópurinn leigði það á hinni vinsælu eignaskiptasíðu Airbnb og ætlaði að eiga eftirminnilega partíhelgi. Vinirnir fundu líkið á laugardeginum, sem dró fyrir vikið mjög úr stemningunni.
Konan var í fötum þegar hún dó en ekki í skóm. Hún var með hring með stórum steini á fingrinum. Nánari upplýsingar um konuna hafa ekki verið gefnar upp.
Ekki er vitað hvernig hún lést en krufning verður framkvæmd á næstunni.
Yfirheyra átti vinahópinn í dag.