Svíaprins fimm daga gamall

Óskar Karl Ólafur Svíaprins
Óskar Karl Ólafur Svíaprins Ljósmynd/Kungahuset.se

Sænska kon­ungs­fjöl­skyld­an hef­ur birt fyrstu form­legu mynd­ina af Óskari Karli Ólafi Svíaprins sem kom í heim­inn 2. mars sl. Mynd­in var tek­in á heim­ili fjöl­skyld­unn­ar, Haga-höll­inni. 

Áður hafði verið birt mynd af for­eldr­un­um, Vikt­oríu krón­prins­essu og Daní­el Svíaprins ásamt Estelle dótt­ur þeirra og hélt Daní­el á stól með ný­fædda prins­in­um. 

Litli prins­inn var hann rúm­ar 14 merk­ur, eða 3.655 grömm að þyngd og 52 cm að lengd. 

Óskar er þriðji í erfðaröðinni að sænsku krún­unni og fjórða barna­barn Karls Gúst­afs Sví­akóngs og Silvíu drott­ingu. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert