Öfgamaðurinn og fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik heilsaði að hætti nasista þegar hann kom inn í réttarsal í morgun. Breivik telur að norska ríkið brjóti á mannréttindum sínum í fangelsinu.
Á vef norska ríkisútvarpsins eru birtar myndir af Breivik, en það eru fyrstu nýju myndirnar sem birtar eru af honum síðan hann var dæmdur hinn 24. ágúst 2012 í 21 árs fangelsi fyrir fjöldamorð.
Nú er hryðjuverkamaðurinn aftur kominn í réttarsal, nú í íþróttasal Skien-fangelsisins, en Breivik afplánar í fangelsinu dóm sem hann fékk fyrir að myrða 77 manns með köldu blóði. Flest fórnarlamba hans voru ungmenni sem voru félagar í ungliðahreyfingu Verkamannaflokksins, en Breivik telur að flokkurinn beri ábyrgð á fjölmenningu í Noregi.
Breivik mætti með rakað höfuð, klæddur í dökk jakkaföt og hvíta skyrtu í réttarsalinn og sneri sér í átt að fjölmiðlafólki áður hann lyfti upp hægri handlegg og heilsaði að hætti nasista.
Breivik hefur verið duglegur að koma sér í fréttirnar úr fangelsinu og ítrekað borið fangelsismálayfirvöld og fleiri þungum sökum um að brjóta á réttindum sínum. Nú segir hann að norska ríkið hafi brotið gegn tveimur ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu. Annað ákvæðið lýtur að banni við ómannúðlegri eða lítillækkandi meðferð eða refsingu og hitt ákvæðið á að tryggja rétt fólks á að virðing sé borin fyrir einka- og fjölskyldulífi og bréfaskiptum.