Handritið fyrir Frozen 2 er nánast tilbúið. Þetta segir leikkonan Kristen Bell en hún ljáði Önnu prinsessu rödd sína myndinni. Fyrsta myndin naut gífurlegra vinsælda og bíða margir spenntir eftir framhaldinu.
Framhaldsins er þó ekki að fyrr en í fyrsta lagi árið 2018.
Bell sagðist skilja óþolinmæði aðdáendanna en benti jafnframt á að mikil áhersla væri lögð á gæði myndarinnar.
Langur tími hafi liðið áður en tilkynnt var að framhald yrði á ævintýrunu um Önnu og Elsu þar sem framleiðendurnir hefðu viljað vera vissir um að þeir myndu koma rétta efninu á framfæri.
Frozen var frumsýnd árið 2013.