Löngu áður en hann sprengdi sig í loft upp á flugvellinum í Brussel í gær var Ibrahim El Bakraoui orðinn glæpamaður. Hann og bróðir hans Khalid höfðu m.a. verið dæmdir fyrir rán, bílarán og að skjóta að lögreglu áður en þeir tóku þátt í hryðjuverkunum í Brussel í gærmorgun.
Ibrahim var þrítugur og hafði hann verið dæmdur í níu ára fangelsi árið 2010 eftir að hafa lent í byssubardaga við lögreglu. Þá tók hann þátt í vopnuðu ráni á skrifstofu Western Union þar sem lögreglumaður særðist á fótlegg.
Það er þó allt önnur birtingarmynd af Ibrahim sem kemur fram í skilaboðum sem fundust í tölvu hans eftir árásirnar. „Mín er leitað allstaðar, ekki lengur öruggur,“ skrifaði Ibrahim m.a. á tölvuna. „Ég veit ekki hvað ég á að gera.“
Bróðir Ibrahim, hinn 27 ára gamli Khalid sprengdi sig í loft upp á Maalbeek lestarstöðinni í hjarta Evrópuhverfisins í Brussel. Hann hafði verið dæmdur í fimm ára fangelsi árið 2011 fyrir að hafa rænt bíl.
Á blaðamannafundi í dag var sagt að Najim Laachraoui væri enn leitað en hann var talinn hafa farið með Ibrahim og þriðja manninum á flugvöllinn í gærmorgun.
Bandaríska dagblaðið Washington Post heldur því nú fram að hann hafi einnig sprengt sig í loft upp á flugvellinum og hefur það eftir tveimur embættismönnum sem neituðu að koma fram undir nafni.
Það þýðir að fjórði maðurinn, sem enn á eftir að nafngreina, hafi sloppið enn sé leitað.
Laachraoui var frá Marokkó og er grunaður um að hafa smíðað sprengjurnar sem voru notaðar í árásunum í París þar sem 130 létu lífið. Rannsakendur fundu leifar af erfðaefni hans á sprengjum sem notaðar voru í París, þar á meðal í Bataclan tónleikahöllinni þar sem 80 létu lífið.
Laachraoui ólst upp í hverfinu Schaerbeek sem er þekkt fyrir fjölmenningu. Hann hefur verið eftirlýstur vegna árásanna í París síðan í desember en undir fölsku nafni. Aðeins í síðustu viku komust yfirvöld af réttu nafni hans.
Laachraoui útskrifaðist úr menntaskóla árið 2009 en fór til Sýrlands í september. Hann var einn af fyrstu Belgunum til þess að fara til Sýrlands til þess að berjast með Ríki íslams.
Hann er talinn hafa snúð aftur til Evrópu í september undir fölsku nafni og komist inn í landið með fölsuðum skilríkjum.
Að minnsta kosti 31 lét lífið í árásunum í gær og rúmlega 270 eru særðir.