Níu fangar frá Jemen sem setið hafa inni í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu voru fluttir til Sádí-Arabíu í kvöld.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, lagði fyrr á þessu ári fram áætlun um að loka Guantanamo-herfangelsinu á Kúbu. Hann safði að tími sé kominn til að loka fangelsinu, sem hafi svikið hagsmuni og gildi Bandaríkjamanna.
Obama hét því að loka fangelsinu þegar hann tók við embætti en hefur ekki haft erindi sem erfiði hingað til.