Engar breytingar verða að sinni gerðar á aðstæðum norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik í Skien fangelsinu. Norskur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu í gær að skilyrði fangelsisvistar hans brjóti gegn Mannréttindasáttmála Evrópu.
Héraðsdómstóllinn í Osló úrskurðaði í gær að Breivik, sem ekki hefur fengið að hafa samneyti við aðra fanga í þau tæp fimm ár sem hann hefur setið þar inni, sætti ómannlegri og niðurlægjandi meðferð sem bryti í bága við Mannréttindasáttmála Evrópu.
AFP-fréttastofan spurði Ole Kristoffer Borhaug, fangelsisstjóra Skien, hvort skilyrðum fangavistar Breivik yrði breytt. Sagði Borhaug engar breytingar verða gerðar á næstunni þar sem dómurinn væri ekki enn aðfararhæfur.
Norska ríkið hefur ekki enn gefið upp hvort það muni áfrýja dóminum sem kom mörgum á óvart.
Breivik hefur verið vistaður í öryggisfangelsi allt frá því hann myrti 77 manns árið 2011, en hann var dæmdur til 21 árs fangelsisvistar ári síðar.
Dómstóllinn úrskurðaði að brotið brotið hefði verið gegn þriðju grein Mannréttindasáttmálans þegar Breivik var látinn gangast undir líkamsleit, ítrekað vakinn á næturnar og látinn sæta einangrunarvist.
Í kjölfar úrskurðarins krafðist lögfræðingur Breivik, Oystein Storrvik, þess að einangrunarvist skjólstæðings síns yrði samstundis rofin.
Breivik hefur þrjá klefa til afnota í Skien fangelsinu og eru þeir búnir tveimur sturtuklefum, tveimur sjónvarpstækjum, Xbox og Playstation leikjatölvum, ritvél, bókum og dagblöðum.
Breivik hélt því einnig fram að ríkið hefði brotið gegn áttundu grein Mannréttindasáttmálans með því að stöðva bréfasendingar hans úr fangelsi og með því að synja honum um heimsóknir, en þessum kæruliðum hafnaði dómstóllinn.