Neyðarástand ríkir nú í Venesúela, en forseti landsins, Nicolas Maduro, hefur hótað að yfirvöld taki verksmiðjur eignanámi sem hafa verið „lamaðar af borgarastéttinni“ og að handtaka eigendur þeirra. Herinn hefur einnig verið settur í viðbragðsstöðu vegna stöðunnar, en meðal annars hefur verið skipulögð heræfing næstu helgi þar sem æfa á viðbúnað við hvaða stöðu sem gæti komið upp í tengslum við óstöðugt efnahagslíf landsins.
Venesúela býr við stærstu olíubirgðir heims, en lækkandi olíuverð hefur komið illa niður á ríkissjóði landsins og efnahagslífi þess. Geisar nú óðaverðbólga í landinu og reyna yfirvöld að berjast við efnahagssamdrátt. Hefur ástandið leitt til matarskorts, hækkandi verðlags, óeirða, glæpaöldu og hafa íbúar í auknum mæli tekið lögin í sínar eigin hendur.
Á síðasta ári var 5,7% efnahagssamdráttur í landinu og verðbólga mælist nú 180%. Spá sérfræðingar því að hún geti jafnvel farið upp í 700% fyrir lok þessa árs.
Í ræðu á fundi með stuðningsmönnum sínum í gær fór Maduro nánar yfir þær aðgerðir sem ráðist yrði í. Sagði hann að öllum brögðum yrði beitt til að koma framleiðslu aftur af stað, en hann kenndi borgarastéttinni um að lama þann iðnað og að bandarísk yfirvöld væru að ýta undir óstöðugleika í landinu með því að aðstoða hægrimenn í landinu.
Sagði hann að hver sá sem vildi halda aftur af framleiðslu í landinu til að skaða efnahaginn ætti að flytja úr landi og að þeir sem létu verða af slíku athæfi ættu heima í fangelsi. Ummælin koma stuttu eftir að stærsta matvælaframleiðslufyrirtæki Venesúela, Polar Group, stoppaði framleiðslu sína á bjór og kenndi stjórnvöldum um þar sem fyrirtækið gæti ekki lengur flutt inn hráefni í bjórframleiðsluna.
Eigandi fyrirtækisins, Lorenzo Mendoza, er ákafur andstæðingur núverandi forseta sem hefur sagt Mendoza vera í efnahagslegu stríði með aðstoð Bandaríkjanna.