Fyrirsæta myrti kærastann „óvart“

Andrew Bush og Maria Kukucova á meðan allt lék í …
Andrew Bush og Maria Kukucova á meðan allt lék í lyndi.

Réttað er nú yfir slóvakís­kri fyr­ir­sætu sem sökuð er um að hafa myrt fyrr­ver­andi kær­asta sinn, bresk­an millj­arðamær­ing, á heim­ili hans á Spáni árið 2014. Kon­an, sem heit­ir Maria Kukucova og er 26 ára göm­ul, seg­ist hafa skotið mann­inn „óvart“ þegar hún reyndi að kom­ast í burtu frá hon­um.

Sak­sókn­ar­ar segja Kukucova hafa skotið Andrew Bush tvisvar sinn­um í höfuðið og einu sinni í öxl­ina á heim­ili hans í strand­ar­bæn­um Estepona 5. apríl 2014. Farið er fram á 20 ára fang­els­is­dóm yfir henni. 

Kukucova sagði fyr­ir dómi í gær að hún vissi ekki hversu mörg­um skot­um hafi verið hleypt af byss­unni þar sem hún hafi tíma­bundið misst heyrn eft­ir fyrsta skotið. 

„Ég vildi ekki meiða hann,“ sagði Kukucova grát­andi fyr­ir dóm­in­um og út­skýrði að Bush hefði haldið sér fastri og hún hafi verið að reyna að losna úr greip­um hans þegar skot­un­um var hleypt af byss­unni. 

Rétt­ar­höld­in hóf­ust í gær í Malaga á Spáni, en gert er ráð fyr­ir að þau muni standa í a.m.k. þrjá daga. 

Bush var 48 ára gam­all og átti skart­gripa­búð í Bretlandi, þar sem Kukucova hafði starfað, áður en hann flutti til Spán­ar. Parið hætti sam­an um mánuði áður en Bush lést, en þá höfðu þau verið sam­an í yfir tvö ár. 

Kukucova seg­ist hafa verið ein í húsi Bush í tvo daga að taka sam­an eig­ur sín­ar, áður en hann kom til baka úr ferðalagi með nýrri kær­ustu sinni, hinni 20 ára gömlu Mariu Korota­eva. Þegar þau komu í húsið og sáu Kukucova þar sagði Bush nýju kær­ust­unni að fara aft­ur inn í bíl að henn­ar sögn, en fór svo sjálf­ur inn í húsið þar sem hann og Kukucova rif­ust. 

Korota­eva er lyk­il­vitni í mál­inu, en hún seg­ist hafa heyrt skot­hvell­ina frá hús­inu nokkr­um mín­út­um eft­ir að þau Bush og Kukucova fóru inn. Eft­ir það kom Kukucova hlaup­andi út og skipaði Korota­eva að fara úr bíln­um, sem hún keyrði svo burtu á. Í kjöl­farið flúði hún til Slóvakíu, en gaf sig svo fram við lög­reglu fjór­um dög­um síðar.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert
Loka