Franska lögreglan skaut mann í umsátri við hús í Magnanville, norðvestur af París, í gærkvöldi. Maðurinn hafði áður myrt franskan lögreglumann og eiginkonu hans og tekið fjölskyldu lögreglumannsins í gíslingu.
Maðurinn hafði, að sögn fréttavefjar BBC, lýst yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams, en samtökin hafa lýst yfir ábyrgð á morðunum.
Atburðurinn átti sér stað um hálfníuleytið í gærkvöldi, þegar árásarmaðurinn réðst á lögreglumanninn fyrir utan heimili hans og stakk hann ítrekað. Hann réðst síðan inn á heimili lögreglumannsins og hélt eiginkonu hans og barni í gíslingu í nokkrar klukkustundir.
Er ráðist var inn á heimili mannsins eftir að samningaviðræður höfðu ekki skilað árangri, fannst kona mannsins látin en þriggja ára sonur þeirra var heill á húfi.
Að sögn franskra fjölmiðla hafði maðurinn, sem heimildir segja að hafi verið Larossi Abballa, hlotið dóm árið 2013 fyrir tengsl sín við öfgahópa íslamstrúar í Pakistan.
Abballa var þá dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og voru sex mánuðir skilorðsbundnir.