Fimm lögreglumenn voru myrtir af leyniskyttum og sex aðrir særðust meðan á mótmælum stóð í borginni Dallas í Bandaríkjunum vegna lögregluofbeldis. Einn þeirra sem er grunaður um verknaðinn varaði við því að sprengjum hefði verið komið fyrir víðs vegar um miðborgina.
Að sögn lögreglustjórans Davids Brown skutu tvær leyniskyttur á lögreglumenn meðan á mótmælunum stóð. Einn almennur borgari særðist einnig.
Lögreglan og annar árásarmannanna skutu hvorir í átt að öðrum við bílageymslu í borginni. Að sögn Brown sagði annar árásarmaðurinn við samningamenn að endirinn væri að koma og að hann ætlaði að meiða og drepa fleiri lögreglumenn. Einnig sagði hann að sprengjum hefði verið komið fyrir í bílageymslunni og í miðborg Dallas. Engar sprengjur hafa þó fundist. Samningaviðræður standa enn yfir við hann.
Frétt mbl.is: Fjórði árásarmaðurinn látinn
Frétt mbl.is: Viðbrögð lögreglu „algjör svívirðing“
Kona sem var einnig í bílageymslunni var handsömuð af lögreglunni, ásamt tveimur öðrum sem grunaðir eru um aðild að árásinni. Einn til viðbótar gaf sig fram við lögreglu.
Mörg hundruð manns tóku þátt í mótmælunum, sem lauk rétt áður en skotárásin hófst.
Sjónarvottar tóku myndbönd af skotárásinni, þar á meðal Michael Bautista:
Hér má sjá myndband af einum árásarmannanna skjóta í átt að lögreglunni:
Mótmælendur voru að vonum skelkaðir þegar skotárásin hófst:
Stutt er síðan þeldökkur maður var skotinn til bana af lögreglunni í Minnesota er hann sat í bíl sínum á rauðu ljósi.
Frétt mbl.is: Skotinn af lögreglu á rauðu ljósi
Annar þeldökkur maður, Alton Sterling, var skotinn til bana af lögreglunni í Baton Rouge í ríkinu Louisiana. Þar hafa mikil mótmæli einnig átt sér stað.