Sprengjuárásarmaðurinn var 12 til 14 ára

Að minnsta kosti 50 manns létu lífið í árásinni sem …
Að minnsta kosti 50 manns létu lífið í árásinni sem gerð var í gærkvöldi. AFP

Árásarmaðurinn sem sprengdi sig í loft upp í brúðkaupsveislu í gær var aðeins 12 til 14 ára að aldri. Frá þessu greindi Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti fyrir skemmstu. Að minnsta kosti 50 manns létu lífið í árásinni sem gerð var í borginni Gaziantep í suðurhluta landsins.

„Sá sem bar sjálfsmorðssprengjuna var á aldrinum 12 til 14 ára og hann annaðhvort setti hana af stað eða einhver annar,“ sagði Erdogan á blaðamannafundi í Istanbúl. Hann ítrekaði á fundinum fyrri yfirlýsingar sínar um að svo virtist sem að Ríki íslams hefði staðið að baki árásinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert