Fjórtán ára stúlka sem fæddist með alvarlegan hjartagalla sem var farinn að hafa alvarleg áhrif á heilsu hennar gat ekki dulið gleði sína og þakklæti er móðir hennar færði henni þær fréttir að hún væri að fá nýtt hjarta.
Bandaríska stúlkan Macey Wright hafði verið á biðlista eftir hjarta um skeið. Síðustu mánuði hefur heilsu hennar hrakað ört og var óttast að hún fengi alvarlega hjartabilun. Í lok ágúst fékk móðir hennar svo símtal frá sjúkrahúsinu. Biðin var á enda.
Móðir Macey, Patrice Wright, fangaði augnablikið þegar hún færði dóttur sinni fréttirnar. Myndskeiðið má sjá hér að neðan en það hefur síðustu daga birst í fjölda fjölmiðla um heim.
„Ég vildi sýna vinum og vandamönnum hversu meiriháttar þetta símtal var fyrir okkur,“ segir móðirin um myndskeiðið, en fjölskyldan býr í Salt Lake City. „Hún er nokkuð viðkvæm og góðhjörtuð stúlka, ég vissi ekki að hún myndi bregðast svona við!“
Macey er nú komin á sjúkrahús og er í undirbúningsmeðferð fyrir hjartaígræðsluna. Hún stendur sig eins og hetja, eins og lesa má um á Facebook-síðunni hennar.