Forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orbán, hyggst leggja fram frumvarp til laga sem bannar móttöku flóttamannahópa. Frumvarpið verður lagt fram á þinginu 10. október næstkomandi.
„Þar sem 98% sögðu nei við að taka á móti flóttafólki í þjóðaratkvæðagreiðslunni neyðumst við til að setja þetta í lög,“ segir forsætisráðherrann við AFP.
Í gær fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla í Ungverjalandi þar sem spurt var um móttöku flóttafólks í tengslum við svokallað kvótakerfi Evrópusambandsins. Þjóðaratkvæðagreiðslan var ekki bindandi þar sem kosningaþátttaka var undir 50%.
Frétt mbl.is: 98% vilja ekki taka á móti flóttamönnum
Orbán hefur barist ötullega gegn svokölluðu kvótakerfi Evrópusambandsins, sem hefur leitast við að takast á flóttamannavandanum með því að deila flóttamönnum niður á aðildarríki sambandsins.
Ef þessi lög um móttöku flóttamannahópa taka gildi munu þau ekki hafa áhrif á flóttamenn sem eru í landinu.