Ríki íslams hefur tapað um fjórðungi af því landsvæði sem það réði eitt sinn yfir, samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarsamtökunum IHS.
Samtökin segja að Ríki íslams hafi tapað 28% af landsvæði frá því í janúar 2015 þegar það var hvað mest.
Á fyrstu níu mánuðum þessa árs minnkaði svæðið sem Ríki íslams réð yfir úr 78 þúsund ferkílómetrum í 65.500 ferkílómetra.
Síðastliðna þrjá mánuði hefur reyndar hægt á þessari þróun, að því er BBC greindi frá. Síðan í júlí hafa hryðjuverkasamtökin tapað 2.800 ferkílómetrum.
Samkvæmt IHS helst þetta í hendur við færri loftárásir Rússa á svæði Ríkis íslams. Í byrjun ársins voru 26% árásanna beint að samtökunum en í sumar var talan komin niður í 17%.