„Þetta er sársaukafullt, og verður það í langan tíma. En ég vil biðja ykkur að muna þetta. Kosningabarátta okkar snerist aldrei um eina persónu... heldur um að byggja upp land sem við elskum... Við höfum séð að land okkar var klofið mun dýpra en við héldum nokkurn tíma,“ sagði Hillary Clinton við stuðningsmenn sína í ávarpi nú síðdegis.
Mannfjöldinn sem saman var kominn í salnum klappaði í fyrstu of mikið til að Clinton gæti hafið ávarp sitt.
„Þakka ykkur öllum svo mikið,“ sagði hún. „Takk fyrir, takk fyrir. Og ég elska ykkur öll líka.“
„Við verðum að viðurkenna þessa niðurstöðu... Donald Trump mun verða næsti forseti okkar, og hann á inni hjá okkur að við tökum honum með opnum hug og gefum honum tækifæri til að leiða þjóðina.“
Þá sagði hún að til viðbótar því að virða kosningarnar, „þurfum við að verja sameiginleg gildi um enga mismunun, réttarríki og jafnrétti gagnvart lögunum“.
Hlaut hún þá mikið lófaklapp.
„Við höfum varið einu og hálfu ári í að koma saman milljónum fólks. Við trúum að ameríski draumurinn sé nógu stór fyrir alla, karla, konur, LGBT-fólk, fólk með fötlun – fyrir alla.“
„Og til allra kvennanna, sem settu traust sitt á mig og þessa baráttu, ég vil að þið vitið að ekkert hefur gert mig stoltari en að vera málsvari ykkar. Ég veit að við höfum enn ekki mölbrotið þetta hæsta og sterkbyggðasta glerþak, en ég veit að einn daginn mun einhver gera það, og vonandi fyrr en við gætum haldið einmitt núna.
Og til allra litlu stúlknanna sem eru að horfa á þetta, aldrei efast um að þið eruð verðmætar og eigið skilið hvert tækifæri til að láta drauma ykkar rætast.“
Að lokum sagðist hún ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið þetta tækifæri.
„Megi guð blessa ykkur og megi hann blessa Bandaríki Norður-Ameríku.“
Hillary Clinton calls on Americans to support President-elect Donald Trump: “We owe him an open mind" https://t.co/fVi0JzyFOr pic.twitter.com/YR5Wnko6jC
— CNN Politics (@CNNPolitics) November 9, 2016