Mörg þeirra umdeildari ummæla sem Donald Trump hefur látið falla, bæði fyrir og eftir kjör hans í embætti Bandaríkjaforseta, virðast hafa verið byggð á efni vefsíðu sem fordæmd hefur verið fyrir að hýsa samsæriskenningar og gefa út falsfréttir.
Fullyrðing Trumps fyrr í þessari viku, um að milljónir fólks hafi kosið með ólöglegum hætti í forsetakosningunum, hafði þannig áður verið kynnt í formi fréttar á vefsíðunni infowars.com. Var hún byggð á niðurstöðum rannsóknar, sem höfðu þá þegar verið hraktar af sannreyningarvefnum Snopes og fleirum.
In addition to winning the Electoral College in a landslide, I won the popular vote if you deduct the millions of people who voted illegally
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) November 27, 2016
Og það var ekki í fyrsta skiptið sem Trump endurvarpaði því sem infowars hafði borið á borð. Meðan á kosningabaráttunni stóð sagði hann þannig að keppinautur sinn, Hillary Clinton, notaðist við heyrnartól í kappræðum og að múslimar í Bandaríkjunum hefðu komið saman og fagnað árásunum á tvíburaturnana 11. september 2001.
Síðunni heldur úti útvarpsmaðurinn Alex Jones, sem meðal annars er þekktur fyrir fullyrðingar sínar um að þær árásir hafi verið verk bandarísku ríkisstjórnarinnar.