Bandaríska kjörmannaráðið staðfesti í dag að Donald Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna, þegar 538 kjörmenn komu saman í höfuðborgum allra 50 ríkja Bandaríkjanna til að útnefna arftaka Barack Obama í embætti forseta Bandaríkjanna. Segir Reuters-fréttastofan kjörmenn Repúblikanaflokksins ekki hafa neitað Trump um atkvæði sín, en hins vegar hafi fimm kjörmenn demókrata neitað Hillary Clinton um sitt atkvæði.
Getgátur höfðu verið uppi um að einhverjir kjörmenn Repúblikanaflokksins myndu ekki greiða Trump atkvæði sitt. Milljónir Bandaríkjamanna sem telja Donald Trump óhæfan til að gegna embættinu höfðu ljáð undirskriftasöfnun nafn sitt, þar sem kallað var eftir því að kjörmenn repúblikana neituðu honum um fullnaðarsigur.
Alls hefðu 37 þeirra þurft að greiða öðrum atkvæði svo Trump yrði ekki kosinn, en forsetaframbjóðandi verður að hljóta hreinan meirihluta atkvæðanna, eða að minnsta kosti 270 atkvæði af 538, til að fá embættið í sinn hlut.
Niðurstöður funda kjörmannaráðsins reyndust hins vegar Trump í vil, en fimm kjörmenn Demókrataflokksins kusu hins vegar þegar á hólminn var komið einhvern annan en Hillary Clinton, frambjóðanda flokksins.
Segir Reuters þetta vera fjölmennasta hóp „trúlausra kjörmanna“ í rúma öld.
Fjórir kjörmannanna voru úr Washington-ríki og einn frá Maine, en ákvörðun þeirra þykir ítreka þá miklu gjá sem hefur myndast í Demókrataflokknum. Enginn kjörmanna repúblikana hafði hins vegar greitt öðrum frambjóðanda en Trump atkvæði sitt, þó að einn kjörmannanna frá Texas hefði áður tilkynnt að hann hygðist gera það.