Repúblikaninn og fyrrverandi yfirmaður umhverfisstofnunar Bandaríkjanna, Christine Todd Whitman, óttast um framtíð barnabarna sinna með Donald Trump sem forseta landsins. Todd Whitman var ríkisstjóri í New Jersey 1994-2001.
Whitman, sem fór með umhverfismál í ríkisstjórn Bandaríkjanna (Environmental Protection Agency, EPA) í valdatíð George W Bush, sakar Trump um að hunsa óyggjandi vísindi og hún hafi áhyggjur af framtíð landsins, þar á meðal sjö barnabarna sinna. Hún varar við því að ef Trump standi við ummæli sín um að draga mjög úr áherslu Bandaríkjanna á umhverfismál þá seti það alla heimsbyggðina í hættu.
Stuðningsmenn Trumps segja reglur um loftslags- og umhverfismál hafi slæm áhrif á viðskipti og efast um áhrif loftlagsbreytinga. Todd Whitman segir aftur á móti að Bandaríkin verði að finna leið til þess að styðja við bakið á viðskiptalífinu án þess að skaða jörðina.
Stefna Trumps í umhverfismálum liggur ekki fyrir en stuðningsmenn hans tala um að auka kolavinnslu, opna nýjar olíuleiðslur og heimila námagröft í víðlendum og jafnvel boranir á norðurslóðum.
Todd Whitman var í viðtali við BBC og þar sagðist hún hafa verulegar áhyggjur af framtíð fjölskyldu sinnar og allra fjölskyldna í heiminum þar sem móðir náttúra hefur aldrei horft á landamæri og það sem eitt ríki gerir hefur áhrif á önnur ríki.