Háttsettir yfirmenn í bandarísku stjórnsýslunni gefa vitnisburð í dag um meinta íhlutun Rússa í forsetakosningunum sem fóru fram síðasta nóvember en verðandi forseti Bandaríkjanna Donald Trump hefur dregið ásakanirnar í efa.
James Clapper, yfirmaður stofnunarinnar National Intelligence Agency og Michael Rogers, formaður þjóðaröryggisstofnunarinnar, sitja fyrir svörum frammi fyrir hermálanefnd öldungadeildarinnar en fyrrum forsetaframbjóðandinn John McCain leiðir yfirheyrsluna. McCain hefur áður kallað meinta íhlutun Rússa „stríðsyfirlýsingu“ af þeirra hálfu.
Frétt mbl.is: Trump tekur undir með Assange
Trump hefur lýst sig sammála efasemdum Julians Assange, stofnanda uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, um að yfirlýsingar bandarískra leyniþjónusta um að rússnesk stjórnvöld hafi reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum séu á rökum reistar.
Í vikunni hæddist hann á Twitter að niðurstöðum bandarísku leyniþjónustunnar um að rússneskir tölvuþrjótar hafi staðið á bak við upplýsingastuld hjá Demókrataflokknum og lekið til Wikileaks til að grafa undan forsetaframboði Hillary Clinton.
The "Intelligence" briefing on so-called "Russian hacking" was delayed until Friday, perhaps more time needed to build a case. Very strange!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 4, 2017
Háðsglósur Trumps hafa sett þrýsting á stjórnvöld að renna stoðum undir kenningarnar en Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur beint spjótunum að yfirvöldum í Moskvu og ákvað rétt fyrir áramót að vísa 35 rússneskum leyniþjónustumönnum frá Bandaríkjunum til að refsa rússneskum stjórnvöldum.