Repúblikanar í fulltrúadeild og öldungadeild Bandaríkjaþings samþykktu í dag og í gær lög sem eru fyrstu skrefin í þá átt að afnema Obamacare, heilbrigðistryggingarkerfið sem Barack Obama fráfarandi forseti kom á í valdatíð sinni. Þetta er í samræmi við það sem Mitch McConnel, leiðtogi öldungadeildar Bandaríkjaþings, sagði í síðasta mánuði, en hann lofaði að afnám kerfisins myndi hefjast í janúar.
Með nýju lögunum sem voru samþykkt verður auðveldara fyrir þingið að afnema heilbrigðistryggingakerfið að fullu og kemur í veg fyrir að fulltrúar Demókrataflokksins geti komið í veg fyrir breytingarnar.
Atkvæðagreiðslan í bæði öldungadeildinni og fulltrúadeildinni var í samræmi við flokkslínur, en repúblikanar greiddu atkvæði með lögunum en demókratar á móti. Aðeins vika er eftir af valdatíð Obama og er atkvæðagreiðslan ákveðið högg fyrir arfleið hans, að því er segir í frétt BBC.
Þingmenn úr báðum flokkum létu þó í ljós áhyggjur sínar af því að ekki væri komin fram nein hugmynd um kerfi í stað þess sem á að afnema. Áður hafði verið haft eftir McConnel að þeir sem nýttu sér kerfið myndu ekki tapa heilbrigðistryggingu sinni og því áfram fá aðgang að heilbrigðiskerfinu.
Paul Ryan, forseti fulltrúadeildarinnar, sagði í dag eftir atkvæðagreiðslu þingsins að með þessu væru tekin fyrstu skrefin í að afnema Obamacare. „Við erum nær því að vinna bug á þeim vandamálum sem þessi lög hafa leitt til,“ sagði Ryan.
Obamacare er tryggingakerfi fyrir þær 20 milljónir Bandaríkjamanna sem eru að öðru leyti ótryggðar.