Fyrrverandi þátttakandi í raunveruleikaþætti Donalds Trump, Apprentice, hefur kært Trump fyrir ærumeiðingar.
Nokkrar konur stigu fram í október og sökuðu Trump, sem þá var í framboði til forseta Bandaríkjanna, um kynferðislega áreitni. Ein þeirra, Summer Zervos, sakaði Trump um að hafa farið með sig í einbýlishús í Los Angeles árið 2007, í stað þess að funda með sér um atvinnutilboð á hóteli í Beverly Hills, þar sem hann hefði káfað á henni og kysst hana gegn hennar vilja.
Kosningaskrifstofa Trumps sendi frá sér tilkynningu í kjölfarið þess efnis að Trump myndi varla eftir Zervos í Apprentice og að ásökunum hennar væri hafnað. Zervos segir að Trump hafi logið að þjóð sinni um framferði sitt í málinu en Zervos greindi frá málshöfðuninni á blaðamannafundi í gær.