„Ef þér líkar ekki vistin hér, farðu þá.“ Þetta segir Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, í kosningaauglýsingu en Hollendingar kjósa til þings 15. mars. Hann segir að hver sá sem dregur í efa gildi landsins ætti að yfirgefa það. „Hagið ykkur eðlilega eða farið,“ segir hann jafnframt. BBC greinir frá.
Tilsvari Rutte er beint til Frelsisflokksins sem leggur áherslu á harða innflytjendastefnu. Mjótt er á munum Frjálslynda flokksins, flokks Rutte, og Frelsisflokksins sem Geert Wilders fer fyrir samkvæmt nýrri skoðanakönnun.
Frétt mbl.is: Meira fylgi eftir sakfellinguna
Ummæli Rutte birtust í fjölmörgum auglýsingum í fjölmiðlum. Í viðtali við forsætisráðherrann í dagblaðinu Algemeen Dagblad var hann inntur eftir frekari skýringum á þeim. Hann sagði andfélagslega hegðun vera meira áberandi undanfarið. Hún sést einkum í almenningssamgöngum og á götum úti. Hann beinir orðum sínum sérstaklega til þeirra sem neita að taka upp hollensk gildi og áreita konur í stuttum pilsum, samkynhneigða menn og segir venjulegt fólk vera orðið að rasistum.
„Ef þú býrð í landi þar sem þú lætur það fara í taugarnar á þér hvernig við komum fram hvert við annað þá hefurðu val. Farðu burt því þú þarft ekki að vera hér,“ segir Rutte.
Fylgi Frelsisflokksins í Hollandi hefur aukist mjög síðan leiðtogi hans, Geert Wilders, var sakfelldur fyrir þjóðernismismunun í desember. Wilders var sakfelldur fyrir þjóðernismismunun en sýknaður af ákæru um hatursáróður vegna ummæla sem hann lét falla um Marokkóbúa í framboðsræðu sem hann hélt í mars 2014.