Talið að sami maðurinn hafi verið að verki

Lögreglulið á Orly-flugvelli í dag.
Lögreglulið á Orly-flugvelli í dag. AFP

Karlmaður sem skotinn var til bana á Orly-flugvelli Parísarborgar í morgun, eftir að hafa gripið byssu frá hermanni, var leyniþjónustum landsins kunnugur. Lögregluyfirvöld Frakklands hafa staðfest að maðurinn sé grunaður um að vera sá sami og skaut og særði lögreglumann í borginni fyrr um morguninn.

Maðurinn var á lista yfir þá sem tengst gætu hryðjuverkahópum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka