Lögreglan í Stokkhólmi hefur lýst eftir manni í tengslum við árásina í borginni fyrr í dag. Maðurinn er klæddur svartri hettupeysu og grænum jakka.
Vefur Expressen hefur birt myndina af manninum. Hún var einnig birt á blaðamannafundi sænsku lögreglunnar, þar sem óskað var eftir upplýsingum um hann. Myndin var tekin í dag.
Lögreglan segir að ökumaður vöruflutningabílsins hafi ekki verið handtekinn, samkvæmt AFP-fréttastofunni.
„Við höfum ekki náð sambandi við ökumanninn,“ sagði lögreglustjórinn Dan Eliasson á blaðamannafundinum. „Það er mikilvægt að ná sambandi við hann," bætti hann við og hvatti almenning til að veita lögreglunni aðstoð.
„Það er enginn í varðhaldi núna,“ bætti Jan Evensson hjá lögreglunni í Stokkhólmi við.
Hann hvatti almennings jafnframt til þess að aka ekki inn í miðborg Stokkhólms.
Á vef Aftonbladet má sjá myndskeið sem var tekið þegar árásin var gerð.
Vittne filmade lastbilsattacken på gågatan. https://t.co/SSxC16zRMr pic.twitter.com/QMzoZiOOB8
— Aftonbladet (@Aftonbladet) April 7, 2017