Búið er að opna Drottningagötuna í Stokkhólmi fyrir umferð á ný. Þessi helsta verslunargata Stokkhólms hefur verið lokuð fyrir umferð frá því að flutningabíl var ekið inn í mannfjölda fyrir framan Åhléns City-verslunarmiðstöðina í gærdag.
Sænskir fjölmiðlar greindu frá því nú fyrir skemmstu að tæknideild lögreglunnar hafi lokið rannsókn á vettvangi árásarinnar sem kostaði fjóra lífið.
Lögregla hefur staðið fyrir húsleit á nokkrum stöðum í dag og hafa sænskir fjölmiðlar greint frá því að þrír hið minnsta hafi verið handteknir í tengslum við rannsóknina. Lögregla hefur ekki viljað staðfesta þær fregnir en hefur þó sagt að hún telji manninn sem handtekinn var í gærkvöldi, 39 ára Úsbeka, vera árásarmanninn.
Þá greinir Aftonbladet frá því að boðað hafi verið til sérstakrar kærleiksstundar á Sergels torgi á morgun í gegnum Facebook undir yfirskriftinni, Stokkhólmur stendur sameinaður! og hafa 23.000 manns þegar lýst yfir áhuga á að taka þátt.