Einn maður er í haldi þýsku lögreglunnar, grunaður um aðild að sprengjuárás á rútu þýska knattspyrnuliðsins Borussia Dortmund í gær.
Eins og áður hefur komið fram fannst bréf á vettvangi þar sem vísað er til hryðjuverkaárásarinnar í Berlín um síðustu jól þar sem tólf manns létu lífið. Hryðjuverkasamtökin Ríki íslams lýstu óðdæðinu á hendur sér.
Þrjár sprengjur sprungu nokkrum mínútum eftir að rúta Borussia Dortmund lagði af stað frá hóteli liðsins á leið í leik gegn Monaco í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Spænski varnarmaðurinn Marc Bartra þurfti að gangast undir aðgerð vegna brotins úlnliðar eftir að glerbrot rigndu yfir hann og þá særðist lögreglumaður á vélhjóli.
Þýska lögreglan greindi frá því í morgun að tveir menn, sem sagðir eru tengjast herskáum íslamistum, væru grunaðir um verknaðinn og er annar þeirra í varðhaldi.
„Við leituðum í íbúðum beggja mannanna og annar þeirra hefur verið hnepptur í varðhald,“ sagði Frauke Köhler, saksóknari.