Árásarmaðurinn, sem myrti einn lögreglumann og særði tvo til viðbótar á Champs Elysees-breiðgötunni í París í gærkvöldi, var að sögn AFP-fréttastofunnar 39 ára gamall Frakki sem hlaut fimm ára fangelsisdóm árið 2005 fyrir þrefalda morðtilraun árið 2001.
Franska lögreglan hefur ekki viljað veita upplýsingar um manninn að öðru leyti en því að borin hafi verið formleg kennsl á hann. Vísar lögregla til rannsóknarhagsmuna og þess að enn sé verið að skoða hvort maðurinn hafi verið einn að verki.
AFP segir tvo þeirra sem árásarmaðurinn skaut á árið 2001 hafa einnig verið lögreglumenn.
Áður hefur komið fram að maðurinn hafi verið á lista lögreglu yfir hugsanlega hryðjuverkamenn og segir AFP hann hafa verið undir stopulu eftirliti hryðjuverkadeildar lögreglu að undanförnu, þar sem grunur lék á að hann ætlaði að myrða lögreglu. Var maðurinn m.a. handtekinn vegna þessa í febrúar á þessu ári, en ekki fundust næg sönnunargögn til að halda honum.
Árásarmaðurinn er sagður hafa komið akandi eftir Champs Elysees og á að hafa farið út úr bílnum og skotið með sjálfvirkri byssu á bifreið lögreglu. Eftir það lagði hann á flótta og skaut á fleiri lögregluþjóna áður en lögreglan felldi hann.
Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni.
BBC segir François Hollande Frakklandsforseta hafa boðað til neyðarfundar hjá frönsku stjórninni í dag vegna málsins, en fyrri umferð forsetakosninganna fer fram í landinu á sunnudag. Hollande vildi ekki staðfesta hvort árásarmaðurinn hefði tengsl við Ríki íslams, en sagðist þess fullviss að árásin teldist til hryðjuverka.
Uppfært: 8:00
Pierre-Henry Brandet, innanríkisráðherra Frakklands, greindi frá því í samtali við Europe 1 útvarpsstöðina að lögregla hefði lýst yfir öðrum manni, sem belgíska öryggislögreglan hefði borið kennsl á, í tengslum við rannsókn sína. Greindi AFP-frá því skömmu síðar að maðurinn hefði gefið sig fram við belgíska lögreglu.