„Þeir drápu marga vini mína“

Ættingjar eins hermannanna sem var drepinn bera líkkistu hans.
Ættingjar eins hermannanna sem var drepinn bera líkkistu hans. AFP

Mik­il sorg rík­ir í Af­gan­ist­an eft­ir árás á her­stöð sem taliban­ar stóðu fyr­ir þar sem yfir eitt hundrað her­menn lét­ust eða særðust.

Ashraf Ghani, for­seti Af­gan­ist­ans, sagði að árás­in, sem var gerð skammt frá borg­inni Maz­ar-e-Sharif, hafi verið gerð þvert á mann­leg gildi eða kenn­ing­ar islam.

Sum­ir þeirra sem komust lífs af gáfu í skyn að árás­ar­menn­irn­ir, sem voru klædd­ir eins og her­menn, hafi fengið aðstoð inn­an frá.

„Þegar árás­armaður kem­ur inn á her­stöðina, af hverju er hann ekki stöðvaður? Það er ekki bara ein hindr­un eða ör­ygg­is­hlið, þau eru sjö eða átta,“ sagði særður hermaður, í frétt BBC.

Afganskir ættingjar fórnarlamba fylgjast með sjúkrabíl flytja lík hermanna.
Af­gansk­ir ætt­ingj­ar fórn­ar­lamba fylgj­ast með sjúkra­bíl flytja lík her­manna. AFP

Mohammad Qur­bu­an, sem er 19 ára, særðist á hendi og á mjöðm í árás­inni. Hann sagði við AFP-frétta­stof­una að mörg fórn­ar­lambanna hafi verið skot­in af stuttu færi.

„Leiðtog­inn sagði þeim að miða á höfuðin. Þeir drápu marga vini mína. Ég stökk út um glugga til að bjarga lífi mínu,“ sagði hann.

Talið er tala lát­inna gæti farið í 150. Flest­ir her­mann­anna sem lét­ust voru ung­ir að árum og að stíga sín fyrstu skref.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert