Andri Steinn Hilmarsson -
Franski forsetaframbjóðandinn og miðjumaðurinn Emmanuel Macron segir að gera þurfi breytingar á Evrópusambandinu. Annars standi sambandið frammi fyrir „Frexit“. Þetta segir hann í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC.
„Ég er Evrópusinni. Ég varði gildi og hugmyndafræði sambandsins ítrekað í kosningabarátunni vegna þess að ég tel hvort tveggja mikilvægt fyrir íbúa Frakklands og fyrir okkar stað í alþjóðavæðingunni,“ segir Macron. „En á sama tíma verðum við að taka á þessu ástandi. Hlusta á fólkið, og þá staðreynd að það er reitt.“
Macron segir að það yrðu svik ef hann leyfði Evrópusambandinu að halda áfram á þeirri vegferð sem það væri á. „Og ég vil það ekki. Vegna þess að daginn eftir þá verður niðurstaðan Frexit. Eða við fáum Þjóðfylkinguna [flokk Marine Le Pen] aftur,“ segir hann.
Macron hefur um 20 prósentustiga forskot á Le Pen í könnunum, en kosið verður næsta sunnudag. Le Pen hefur reynt að höfða til hófsamari kjósenda eftir fyrri umferðina, en hún hefur barist fyrir úrsögn Frakka úr Evrópusambandinu og harðri innflytjendalöggjöf.
„Ég hef heyrt kjósendur tjá ótta sinn,“ sagði hún á kosningafundi í Nice og bætti við að hún hygðist bjóða leiðtogum ESB til fundar strax í kjölfar kosninganna til að ræða aukið vald til handa stjórnvöldum einstakra aðildarríkja.
Í kjölfarið yrði boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu. „Ekkert verður gert án ykkar, ekkert verður gert á móti ykkur,“ sagði hún en minntist ekkert á tillögur sínar um að segja Frakkland úr evrusamstarfinu og taka aftur upp frankann.