Emmanuel Macron varð í dag yngstur til að gegna embætti forseta Frakklands eftir að hafa svarið embættiseið í Elysées-höll. Þegar Macron kom til hallarinnar tók fráfarandir forseti Frakklands, François Hollande, á móti honum við rauða dregilinn inn í höllina. Veðrið er þokkalegt í París þrátt fyrir lítilsháttar úrkomu.
Macron er 39 ára gamall og er fyrsti forseti fimmta lýðveldis Frakklands sem ekki kemur úr röðum turnanna tveggja í franskri pólitík, Sósíalistaflokksins og Repúblikanaflokksins. Þykir þetta til marks um breytt landslag í frönskum stjórnmálum enda hvorki Macron né Marine Le Pen, fulltrúi Front National, úr röðum flokkanna tveggja og í fyrsta sinn sem báðir frambjóðendurnir sem komast í aðra umferð frönsku forsetakosninganna koma úr óhefðbundnum flokkum.
Eiginkona Macron, Brigitte, var við innsetninguna en þau komu ekki saman til hallarinnar. Hún var klædd í ljósbláa drakt frá Louis Vuitton. Í dag munu þeir Macron og Hollande ræða einslega saman þar sem Hollande gefur honum upp kóða fyrir kjarnorkuvopn í eigu Frakka. Að því loknu mun Macron mæta á athöfn sem hundruð stjórnmálamanna og annarra gesta þar sem niðurstaða kosninganna verður lesin upp.
Við lok formlegrar athafnar verður 21 fallbyssuskoti skotið upp við Invalides á bökkum Signu. Síðan verður ekið með Macron að Sigurboganum þar sem hann leggur blómsveig á gröf óþekkta hermannsins.
Gríðarlegur öryggisviðbúnaður er í París og eru um 1.500 lögreglumenn á vakt við forsetahöllina og Champs-Elysées-breiðgötuna sem liggur þar skammt hjá. Öllum götum í nágrenninu hefur verið lokað fyrir umferð.
Að loknum formlegum hádegisverði mun Macron fara í ráðhús Parísar sem er hluti af hefðbundinni dagskrá á fyrsta degi forseta Frakklands í starfi.
Það verður nóg að gera fyrir Macron fyrstu vikuna í starfi. Á morgun mun hann væntanlega gefa upp nafn næsta forsætisráðherra Frakklands en fljúga síðan til Berlínar á fund kanslara Þýskalands, Angelu Merkel. Sem einnig er mjög hefðbundið fyrir fyrstu embættisverk forseta Frakklands - að heimsækja leiðtoga helstu samstarfsríkja í Evrópu. Macron er mikið í mun að auka samstarf ríkja í Evrópu og vill hann að myndað verði sérstakt þing og fjárlög fyrir evru-svæðið.