Arndale-verslunarmiðstöðin í Manchester var rýmd nú fyrir skemmstu og hefur Reuters fréttastofan eftir vitnum að þau hafi heyrt „háan hvell“. Segir fréttastofan stóra hópa fólks hafa hlaupið á brott frá verslunarmiðstöðinni.
„Fólk kemur út hlaupandi og helst í hendur,“ hefur Reuters eftir ljósmyndara á vettvangi.
Arndale verslunarmiðstöðin er í miðbæ Manchester, líkt og Manchester Arena tónleikahöllin þar sem 22 létust og 59 slösuðust í sjálfsvígsárás í gærkvöldi
Lögregla í Manchester hefur ekki tjáð sig um rýmingu verslunarmiðstöðvarinnar í morgun.