Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að landið sé aftur fórnarlamb hrottalegrar hryðjuverkaárásar. Sjö eru látnir eftir árásir í London í gærkvöldi en lögregla skaut þrjá menn til bana sem grunaðir eru um að hafa staðið á bak við árásirnar.
„Lögreglunni hefur tekist að koma í veg fyrir fimm tilraunir til árása síðan árásin var gerð á Westminster,“ sagði May en þá ók maður á vegfarendur nærri þinghúsunum og varð fjórum að bana, auk þess að særa lögreglumann til ólífis í stunguárás.
Hún sagði að nokkrir hlutir þyrftu að breytast. Hún sagði að árásarmennirnir væru tengdir böndum af íslömskum öfgahópum, sem telja vestræn gildi stangast á við þeirra gildi. Það væri eitt af helstu vandamálum nútímans að sigrast á slíkum ógnum.
Ráðherra sagði enn fremur að það þyrfti að tryggja að lögregla hefði allt sem þarf til að berjast gegn hryðjuverkamönnum og leggur til að hryðjuverkalöggjöf landsins verði endurskoðuð. Hún vill að menn sem verða uppvísir að slíkum glæpum fái þyngri dóma en nú þekkist.
Það yrði að taka á þessum málum af festu í Bretlandi. „Það er allt of mikið umburðarlyndi í garð öfgahópa í landinu,“ sagði May.
Hún sakaði stóru netfyrirtækin um að skapa „örugg svæði“ á netinu fyrir öfgamenn. Hún hvatti alþjóðasamfélagið til að þrýsta á fyrirtækin til að grípa til aðgerða.
„Við verðum að standa saman og munum sigra óvini okkar.“
"There is far too much tolerance of extremism in our country," says Prime Minister Theresa May as she gives a statement on the #LondonAttack pic.twitter.com/KxXwELojZ5
— Sky News (@SkyNews) June 4, 2017