Fjögur arabaríki, Sádi-Arabía, Egyptaland, Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmin, hafa slitið stjórnmálasambandi við Katar. Ástæðuna segja þau vera stuðning þarlendra stjórnvalda við hryðjuverkasamtök, líkt og Ríki íslams, og öfgamenn.
Ríkisfréttastofan í Sádi-Arabíu, SPA, tilkynnti í morgun að búið væri að stöðva ferðir á milli landsins og Katar. Heimildamenn SPA segja að ákvörðunin hafi verið tekin til að tryggja öryggi þjóðarinnar fyrir hryðjuverkamönnum.
Yfirvöld í Katar segja ákvörðun ríkjanna fjögurra tilefnislausa og fordæma hana.
Barein varð fyrst ríkjanna til að slíta stjórnmálasambandinu og í kjölfarið fylgdu Sádi-Arabía og hin ríkin.
Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa gefið sendifulltrúum frá Katar tvo sólarhringa til að yfirgefa landið en þarlend stjórnvöld saka yfirvöld í Katar um að styðja fjárhagslega við bakið á hryðjuverkahópum.
Ekki er ljóst hvaða áhrif hernaðarstarfsemi Bandaríkjanna á svæðinu hefur en stutt er síðan Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fór í opinbera heimsókn til Sádi-Arabíu. Bandaríski herinn er til að mynda með um 10 þúsund manna bækistöð í Katar.
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu fer fram í Katar árið 2022.