Ástand þingmannsins Steve Scalise, eins þeirra fimm sem voru skotin í dag á hafnaboltaæfingu skammt frá Washington, er enn alvarlegt eftir aðgerð sem hann gekkst undir.
„Scalise var alvarlega særður og hann er enn í lífshættu,“ sagði í yfirlýsingu frá Medstar Washington-sjúkrahúsinu á Twitter.
Ástand annarra sem lentu í árásinni er gott, samkvæmt yfirlýsingu.
Rep. Scalise was critically injured and remains in critical condition. The other patient is in good condition.
— MedStar Washington (@MedStarWHC) June 14, 2017
Fyrr í dag var ástand Scalise sagt vera stöðugt og að hann hefði talað við eiginkonu sína í síma.