Maðurinn sem særði fimm manns í skotárás á hafnaboltaæfingu þingmanna Repúblikanaflokksins í dag lést af sárum sínum eftir skotbardaga við lögreglumenn. Þetta sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi sem boðað var til skömmu eftir árásina.
Árásin átti sér stað á hafnaboltaæfingu þingmanna í morgun í borginni Alexandríu í Virginíuríki. Fimm voru skotnir, þar af tveir lögreglumenn og þingmaðurinn Steve Scalise var skotinn í mjöðmina. Alríkislögreglan fer með rannsókn málsins.
„Árásamaður hleypti af skotum á þingmenn þar sem þeir voru að æfa sig fyrir hinn árlega góðgerðaleik. Yfirvöld eru að rannsakamálið en maðurinn er látinn af sárum sínum,“ sagði forsetinn. „Steve Scalise þingmaður var skotinn og er illa særður en hann er nú í stöðugu ástandi á sjúkrahúsinu ásamt tveimur hugrökkum lögregluþjónum.“