Strætisvagnabílstjórar í frönsku borginni Nantes mættu í pilsum í vinnuna í dag en með þessu vilja þeir sýna yfirmönnum sínum hversu ósáttir þeir eru við að mega ekki klæðast stuttbuxum í vinnunni.
Hitabylgja er í Frakklandi þessa dagana. Bílstjórarnir óskuðu eftir heimild til þess að klæðast stuttbuxum í vinnunni þessa viku vegna þrúgandi hitastækjunnar en fengu neitun. Bílstjórarnir ákváðu að mótmæla þessum óásættanlegu vinnuaðstæðum með því að klæðast pilsum í dag.
„Þar sem pils eru viðurkenndur einkennisfatnaður hjá fyrirtækinu ákváðum við að klæðast þeim,“ segja bílstjórarnir en karlar í hópi bílstjóra segjast dauðöfunda starfssystur sínar af því að mega klæðast pilsum í hitanum.
Hér er hægt að horfa á myndskeið