Að minnsta kosti 30 óbreyttir borgarar eru taldir hafa látist í loftárás á Deir Ezzor hérað í austurhluta Sýrlands, fyrr í dag. Um er að ræða svæði sem hryðjuverkasamtökin Ríki íslams hafa tekið yfir í landinu. AFP fréttastofan greinir frá.
Ekki er enn ljóst hvort árásin var gerð af hálfu Bandaríkjamanna, sýrlenska hersins eða rússneskra bandamanna.
Aðeins eru tveir dagar síðan gerð var loftárás á fangelsi hryðjuverkasamtakanna, undir forystu Bandaríkjahers, þar sem talið er að 42 almennir fangar og 15 vígamenn hafi látið lífið.