Hæstiréttur Austurríkis hefur úrskurðað að eignarnám yfir æskuheimili Adolf Hitlers skuli standa. Austurríska þingið ákvað í desember að taka húsið eignanámi en eigandinn áfrýjaði þeirri ákvörðun til Hæstaréttar.
Ekki er ljóst hvað verður gert við eignina en ráðamenn hafa rætt um að rífa hana. Húsið er í bænum Braunau am Inn við Salzburger Vorstadt-götu.
Ákvörðun þingsins var tekin eftir magra ára lagadeilu við Gerlinde Pommer, eiganda hússins, vegna framtíðar þess. Hann hefur leigt austurríska ríkinu húsið frá árinu 1972 en hefur neitað að selja það en híbýlið er í niðurníðslu.
Ríkisstjórn Austurríkis sagði að þetta væri nauðsynlegar aðgerðir til að koma í veg fyrir að byggingin yrði gerð að helgidóm fyrir nýnasista. Lögfræðingur Pommers sakaði stjórnina um harðar aðgerðir gegn skjólstæðingi sínum og áfrýjaði málinu en þeirri áfrýjun hefur nú verið hafnað.
„Líklegt er að húsið gæti orðið helgistaður fyrir nýnasista. Þess vegna var nauðsynlegt að koma í veg fyrir að eitthvað glæpsamlegt gæti átt sér stað þarna,“ sagði meðal annars í dómsyfirlýsingu.
Dómarar bentu á að eigandi hússins myndi fá skaðabætur fyrir eignina.
Þrátt fyrir að Hitler hafi aðeins búið í húsinu fyrstu vikur ævi sinnar hefur það verið þyrnir í augum austurrískra stjórnvalda í áratugi.
Á hverju ári, á fæðingardegi Hitlers, eru haldin mótmæli gegn fasisma fyrir utan húsið, sem hefur staðið autt frá árinu 2011.